Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Fréttir

Sunnudagur 5. febrúar

Hljóðfæramessa í Akureyrarkirkju kl. 11.00
Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir. Sr. Sigríður Guðmarsdóttir, sem gefur kost á sér til embættis biskups Íslands, prédikar.
Matti Saarinen leikur á gítar. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.00.
Umsjón Sunna Dóra Möller og Hjalti Jónsson.

Samvera eldri borgara


Næstkomandi fimmtudag, 2. febrúar kl. 15.00, verður samvera eldri borgara í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Gestur samverunnar er Gísli Sigurgeirsson, húsbóndi á Sigurhæðum, og mun hann fjalla um sr. Matthías Jochumsson og mannlífið á Akureyri fyrr á árum. Tónlistin er í höndum Hjalta Jónssonar. Kaffi og brauð kr. 700,-

Bíll fer frá Kjarnalundi kl. 14.10, Víðilundi kl. 14.25, Mýrarvegi 111, kl. 14.35 og Hlíð kl. 14.45.


Sunnudagur 29. janúar

Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Umsjón sr. Svavar Alfreð Jónsson og Sunna Dóra Möller.
Barnakórar kirkjunnar syngja undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur og Sigríðar Huldu Arnardóttur.

Kvöldmessa í Akureyrarkirkju kl. 20.00. Sorg og von.
Prestur er sr. Bolli Pétur Bollason.
Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur.
Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.


Sunnudagur 22. janúar

Messa í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Prestur er sr. Guðmundur Guðmundsson.
Félagar úr messuhópi aðstoða.
Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.00.
Umsjón Sunna Dóra Möller og Hjalti Jónsson.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning