Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju er alla sunnudaga kl.11.00-12.00
VIÐ ERUM SAMAN Í TRÚ OG GLEÐI.
Í sunnudagaskólanum gerum við margt skemmtilegt. Til dæmis syngjum, heyrum biblíusögur og förum í leiki og margt fleira. Börnin fá kirkjubókina að gjöf. Góðir gestir kíkja í heimsókn svo sem Engilráð, Rebbi refur og Konni kirkjufugl. Allir eru velkomnir í sunnudagaskólann, sem er í umsjá, Sólveigar Höllu, Heimis Ingimarssonar og góðu aðstoðarfólki úr TTT starfinu. Hlökkum til að sjá þig!
Kirkjukrakkar og TTT
Kirkjukrakkar hittast á miðvikudögum kl. 16.00-17.00. Í boði er biblíufræðsla, söngur, leikir, þrautir,
sögur, föndur, leikrit, útivera og margt fleira. Umsjón: Sólveig Halla Kristjánsdóttir.
TTT-Tíu til tólf ára krakkar hittast á miðvikudögum kl. 17.00-18.00. Leikir og lífsgleði er yfirskrift TTT starfsins
í vetur. Samverur hefjast með helgistund, síðan er farið í leiki, föndrað og þrautir leystar. Umsjón: Tinna Hermannsdóttir,
Óli Dagur Valtýsson og Hafsteinn Jóhannsson.
Æskulýðsfélagið
Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju, sem er elsta starfandi æskulýðsfélag landsins, verður á sínum stað í vetur. Fundir verða á miðvikudagskvöldum milli kl. 20.00 og 21.00 í Safnaðarheimili kirkjunnar. Æskulýðsfélagið er ætlað unglingum í 8.- 10. bekk og það er ótrúlega gaman á æskulýðsfundum þar sem gamni og alvöru er blandað saman. Umsjón: Tinna Hermannsdóttir, Karen Eva Harðardóttir og Eva María Karvelsdóttir. Allir unglingar eru velkomnir í Æskulýðsfélagið.





