Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Barna- og æskulýðsstarf

Barna- og æskulýðsstarf Akureyrarkirkju
Veturinn 2011-2012

Kirkjukrakkar:
Er kirkjustarf fyrir 6-9 ára börn. Starfið fer fram á miðvikudögum kl. 15.00-16.00 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Starfið er lifandi og skemmtilegt. Farið er í leiki, föndrað og kenndar biblíusögur og bænir. Börn sem eru í frístundaheimili Brekkuskóla eru sótt þangað og foreldrar sækja svo börn sín í kirkjuna að stund lokinni. Fyrsta stund kirkjukrakka verður miðvikudaginn 14. septmber.
Umsjón með kirkjukrökkum hefur Sunna Dóra Möller og henni til aðstoðar eru Regína, Aron og Elsa.

TTT-starf:
TTT-starfið er kirkjustarf fyrir 10-12 ára börn. Stundirnar eru á miðvikudögum kl. 17.00-18.00 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Samverurnar byggjast upp af fræðslu, leikjum og fleiru skemmtilegu sem við finnum upp á að gera saman. Einnig verður farið á TTT-mót á Ólafsfirði í byrjun nóvember.
Umsjón með TTT-starfinu hefur Sunna Dóra Möller og Eva María Karvelsdóttir.

Leikfélagið Adrenalín:
Um er að ræða nýtt verkefni sem farið verður af stað með í vetur. Leikfélagið Adrenalín er starf fyrir ungmenni í 8. bekk. Í vetur verður starfið með þeim hætti að settur verður upp söngleikur í samstarfi við lífsleiknikennslu grunnskólanna og Leikfélags Akureyrar. Söngleikurinn verður sýndur á sviði leikfélagsins á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar þann 4. mars 2012. Í svona verkefni ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem að áhugasviðið er tónlist, leiklist, söngur, búningahönnun, förðun eða auglýsingagerð.
Umsjón: Sunna Dóra Möller, Hildur Eir Bolladóttir og Hlín Bolladóttir.

Æskulýðsfélagið ÆFAK:
Æskulýðsfélagið ÆFAK er elsta starfandi æskulýðsfélag á landinu. Samverurnar eru í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á miðvikudagskvöldum kl. 20.00. Þetta starf er fyrir ungmenni í 9. bekk og eldri. Í æskulýðsfélaginu komum við saman og leikum okkur, spjöllum um lífið og tilveruna, vinnum að áhugaverðum verkefnum og förum á æskulýðsmót í lok febrúar 2012.
Umsjón: Sunna Dóra Möller og Tinna Hermannsdóttir.

Sunnudagaskólinn:
Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju er alla sunnudaga yfir veturinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju kl. 11.00. Þriðja sunnudag í hverjum mánuði er svo fjölskyldumessa og er þá sunnudagaskólinn hluti af henni og fer messan fram í kirkjunni.
Umsjón Sunna Dóra Möller og Hjalti Jónsson.

Hægt er að hafa samband við Sunnu Dóru Möller, æskulýðsfulltrúa, í síma 694-2805 eða á netfanginu sunnadora@akirkja.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning