Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Eyþór Ingi Jónsson

Eyþór Ingi Jónsson er fæddur og uppalinn í Dalasýslu, þar sem hann hóf tónlistarmenntun sína sex ára gamall.  Hann nam síðar orgelleik hjá Fríðu Lárusdóttur við Tónlistarskólann á Akranesi.  Síðan lærði hann orgelleik, kórstjórn og hliðargreinar við Tónskóla Þjóðkirkjunnar undir leiðsögn Harðar Áskelssonar, Smára Ólasonar o.fl.  Eyþór lauk Kantorsprófi frá skólanum vorið 1998.  Hann nam síðan Kirkjutónlist við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð og eftir það lauk hann einnig námi í Konsertorganistadeild í sama skóla.  Orgelkennari hans var prófessor Hans-Ola Ericsson og einnig hefur hann lært hjá Gary Verkade.  Hann hefur einnig sótt námskeið hjá fjölda þekktra kennara eins og Harald Vogel, Wolfgang Zerer, JonLaukvik, Mathias Wager, Olivier Latry, David Briggs, Michael Radulescu  o.fl.  Auk þess að leggja áherslu á orgelleik í námi sínu hefur Eyþór lagt mikla áherslu á kórstjórn.  Kennari hans var Erik Westberg.  Eyþór hefur stjórnað fjölmörgum kórum, bæði í Svíþjóð og á Íslandi.  Einnig hefur hann sungið í mörgum kórum, m.a. í Westberg Vokalensamble. Eyþór hefur kennt við tónlistarskólana á Akranesi, Dalasýslu, Akureyri og Tónskóla Þjóðkirkjunnar ásamt því að spila í kirkjum og með kórum víða um land.  Hann hefur haldið fjölda orgeltónleika hérlendis, í Svíþjóð, Danmörku og í Noregi.  Hann starfar nú sem organisti við Akureyrarkirkju.  Einnig er hann stjórnandi sönghópsins Hymnodia.   Eyþór hefur einbeitt sér að flutningi tónlistar frá 17. öld, bæði fyrir orgel og kór. Í takmörkuðum frítíma sínum finnst organistanum gott að komast í veiði, bæði stangveiði sem og skotveiði.  Fjallavera ýmiskonar heillar manninn einnig.  Samt er hann afar heimakær og finnst best af öllu að vera í faðmi fjölskyldunnar, en Eyþór er giftur Ernu Hauksdóttur og eiga þau þrjár dætur.

 

Eyþór Ingi Jónsson was born and raised in Dalasýsla, beginning his musical education there at the age of six. Later, he learnt to play the organ with Fríða Lárusdóttir at the Akranes School of Music. He then went on to study organ playing, choir conducting and related subjects at the Icelandic State Church School of Music with Hörður Áskelsson, Smári Ólason, and others. Eyþór completed his Musical director’s course from the school in early 1998, later going on to study church music at the Musical University of Piteå in Sweden, and finally studying at the Concert organist department of that same university. His organ instructors were profs. Hans-Ola Ericsson and Gary Verkade. Eyþór has also attended courses held by several well known teachers, including Harald Vogel, Wolfgang Zerer, Jon Laukvik, Mathias Wager and Olivier Latry. Eyþór has taught at the Icelandic music schools in Akranes, Dalasysla and Akureyri, as well as playing in churches and with choirs nationwide. He has held numerous concerts in Iceland, Sweden and Norway, and conducted many choirs both in Iceland and in other countries. In 1998-1999 he served as organist at Akureyri church in the absence of Björn Steinar Sólbergsson, and in 2002 he was musical director and organist at Skellefteå Church in Sweden. Eyþór is currently  a choir conductor and organist at Akureyri church, as well as conducting the independent choir Hymnodia. He focuses on seventeenth century music, both for organ and choir, and took part in founding the Akureyri society for enthusiasts of music from that period.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning