Við upphaf skólaársins hefst einnig fermingarfræðslan í kirkjunum. Þeir unglingar sem fermast í Akureyrarkirkju næsta vor munu mæta
í fræðsluna á þriðjudögum eftir skólalok. Hóparnir verða þrír og mæta þriðja hvern þriðjudag tvær
klukkustundir í senn og verður starfið byggt upp með svipuðum hætti og undanfarin ár. Börnin fá hressingu í Safnaðarheimilinu og
síðan fer fræðslan bæði fram bæði þar og í kirkjunni, en sr. Svavar A. Jónsson hefur tekið saman fræðsluefni tengt gluggum
Akureyrarkirkju sem nú verður kennt í fjórða sinn.
Sem fyrr er fræðslan að mestu leyti í höndum presta kirkjunnar en ýmsir aðrir verða fengnir til að ræða við fermingarbörnin um efni sem
tengjast kristinni trú og kristnum lífsgildum.
Hjálparstarf kirkjunnar verður kynnt rækilega meðal fermingarbarnanna og öll fermingarbörn fengin til að taka virkan þátt í því
starfi með söfnunarátaki sem fer fram um allt land.
Fermingarbörnin verða nokkrum sinnum í vetur boðuð sérstaklega til messu en auk þess eru foreldrar og forráðamenn þeirra eindregið hvött
til að fylgjast með því að börnin sæki messur reglulega og sömuleiðis til að koma sjálf með börnum sínum í kirkju.
Hópaskipting í fermingarfræðslu, á þriðjudögum, veturinn 2010-2011:
Hópur 1: Brekkuskóli kl. 15.00-17.00.
(21. sept., 12. okt., 2. nóv., 23. nóv., 14. des.) 2010
(18. jan., 8. feb., 1. mars., 22. mars.) 2011
Hópur 2: Lundarskóli kl. 15.00-17.00.
(28. sept., 19. okt., 9. nóv., 30. nóv.) 2010
(4. jan., 25. jan., 15. feb., 8. mars., 29. mars.) 2011
Hópur 3: Oddeyrarskóli og Naustaskóli kl. 15.30-17.30.
(5. okt., 26. okt., 16. nóv., 7. des.) 2010
(11. jan., 1. feb., 22. feb., 15. mars., 5. apríl.) 2011
Fermingardagar 2011:
Laugardagurinn 16. apríl, Pálmasunnudagur 17. apríl, laugardagurinn 7. maí, laugardagurinn 4. júní, laugardagurinn 11. júní og
Hvítasunnudagur 12. júní.
Fermt verður kl. 10.30.





