Sunnudagaskólinn
Sunnudagaskólinn er fyrir öll börn og algengt er að foreldrar komi ásamt börnunum.Yngstu börnin eru þriggja til fjögurra ára! Margt er á dagskránni í sunnudagaskólanum, sögur, leikrit, söngvar, leikir, tónlist, veitingar og iðja svo nokkuð sé nefnt. Sunnudagaskólinn er yfirleitt í Safnaðarheimili. Börnin mæta þó gjarnan í kirkjuna og taka þátt í upphafi hinnar almennu sunnudagsguðsþjónustu. Sunnudagaskólinn hefst að hausti en lýkur á vorin.

Almennar guðsþjónustur
Hinar almennu sunnudagsguðsþjónustur eru yfirleitt kl. 11:00, en á sumrin er kvöldmessa í annað hvert skipti. Sunnudagaskólabörnin taka þátt í upphafi guðsþjónustunnar en fara svo niður í Safnaðarheimili. Að jafnaði einu sinni í mánuði er boðið upp á fræðslu og léttar veitingar í tengslum við guðsþjónustuna.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja í messunum og leiða almennan söng. Stundum syngur kórinn allur fyrir okkur.
Kyrrðar- og fyrirbænastundir
Kyrrðar- og fyrirbænastundir fara fram í hádeginu á
fimmtudögum í kirkjunni eða kapellu. Stundirnar hefjast með oregelleik kl. 12:00 og þeim lýkur fyrir kl. 12:30. Fyrirbænaefni eru skráð í sérstaka bók og má koma þeim til presta. Eftir stundina er unnt að kaupa sér einfalda máltíð í Safnaðarheimili Kyrrðar- og fyrirbænastundirnar eru í viku hverri og er miðað við að fólk geti verið mætt til vinnu sinnar eigi síðar en kl. 13:00.
Morgunsöngur
Morgunsöngurinn fer fram í kapellunni hvern þriðjudag kl. 9:00. Þetta eru mjög einfaldar samverur sem samanstanda af sálmasöng, ritningarlestri, víxllestri úr Davíðssálmum og bænagjörð. Allir eru velkomnir í morgunsöng! Morgunsöngnum lýkur um kl. 9:15
Æðruleysisguðsþjónustur
Æðruleysismessurnar draga heiti sitt af æðruleysisbæninni, sem margir þekkja. Tónlistin er létt og oftast annast Krossbandið undirleik.Æðruleysismessurnar eru á kvöldin, síðasta sunnudag í hverjum mánuði yfir vetrartímann. Allir eru hjartanlega velkomnir! Eftir messurnar er heitt á könnunni í Safnaðarheimili.
Messur með léttri tónlist
Þessar messur eru ný tegund helgihalds í Akureyrarkirkju. Í þeim er tónlistin af léttara taginu. Nýstofnaður Unglingakór Akureyrarkirkju leiðir sönginn. Gjarnan er boðið upp á hressingu í Safnaðarheimili eftir messu. Messurnar eru sérstaklega ætlaðar ungu fólki á öllum aldri.