Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Kórar

Barnakórar Akureyrarkirkju eru tveir.  Í yngri kórnum eru krakkar á aldrinum 7-9 ára (2. - 4. bekkur) en í eldri kórnum eru 10 - 12 ára krakkar (5.- 7. bekkur).  Yngri kórinn æfir á fimmtudögum frá kl. 15.00 – 16.00 en eldri kórinn á fimmtudögum frá kl. 16.00 – 17.00.  Kórarnir syngja að jafnaði einu sinni í mánuði í fjölskylduguðsþjónustum en einnig á aðventukvöldinu og á jólum og páskum.  Kórarnir, ásamt krökkum úr TTT starfinu, fluttu helgileik á öðrum degi jóla sem tókst frábærlega. Framundan er svo ýmislegt spennandi og markmiðið er að hafa gaman saman.
Stjórnandi kóranna er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og áhugasömum kórkrökkum er bent á að hafa samband við hana.

Stúlknakór Akureyrarkirkju var stofnaður haustið 2003.  Í kórnum eru stúlkur á aldrinum 13 - 16 ára.  Kórinn kemur reglulega fram í helgihaldi kirkjunnar.  Sér hann um tónlistarflutning við kvöldmessur, fermingar og einstöku sinnum við venjulegar messur á sunnudegi.  Mikill metnaður er lagður í að halda úti öflugu félagsstarfi fyrir stúlkurnar auk tónlistarkennslu.  Kórinn æfir á fimmtudögum kl. 17.00. 
Auk þess fer kórinn reglulega í æfingabúðir. Efnisval kórsins er fjölbreytt.  Auk hefðbundinnar kirkjutónlistar syngur kórinn dægurlög, spirituals og gospel, þjóðlög, íslenska nútímatónlist, djass og síðast en ekki síst stórverk klassísku tónskáldanna. Kórinn hefur haldið á þriðja tug sjálfstæðra tónleika og sungið með fjölda þekktra tónlistarmanna.  Þar má nefna: Jón Jósep Snæbjörnsson, Pál Óskar Hjálmtýsson, Megas, Hildi Völu og Jón Ólafsson, Óskar Pétursson, Regínu Ósk, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands o.fl.
Mikilvægur hluti af kórstarfinu eru tónleikaferðir.  Kórinn hefur farið til Svíþjóðar og Finnlands (2004), Slóveníu og Austurríkis (2006) og Þýskalands og Hollands (2008).
Formaður Stúlknakórs Akureyrarkirkju er Bergrún Andradóttir og stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson.

 

Kór Akureyrarkirkju var formlega stofnaður árið 1945. Stjórnandi frá upphafi og til ársins 1986 var Jakob Tryggvason fyrrverandi organisti Akureyrarkirkju. Björn Steinar Sólbergsson tók við kórnum af Jakobi og stýrði honum til ársins 2006 en þá tók núverandi organisti, Eyþór Ingi Jónsson við. Kórinn syngur við reglulegt helgihald í Akureyrarkirkju og er honum skipt í fjóra messuhópa. Einu sinni í mánuði syngur kórinn þó allur við messu, sem og á hátíðum og við sérstök tækifæri.

Annar mikilvægur þáttur í starfi kórsins er sjálfstætt tónleikahald sem hefur borið hann víðsvegar um landið með þátttöku m.a. í kirkjuvikum og kirkjulistavikum bæði á Akureyri og í Reykjavík. Einnig hefur kórinn farið í tónleikaferðir til Danmerkur, Kanada, Frakklands og Þýskalands. Mikil áhersla er lögð á flutning á ,,a capella” tónlist (kórsöngur án undirleiks) en auk þess flytur kórinn reglulega stærri verk og hefur m.a. flutt messur eftir Haydn, Mozart, Schubert, Kodály og Gounod. Einnig Requiem eftir Gabriel Fauré og G. Verdi, Ein Deutsces Requiem eftir J. Brahms, Magnificat eftir J.S. Bach, Gloriu eftir Francis Poulenc og Missa di Gloria eftir Puccini.

Kórinn hefur sungið inn á tvær hljómplötur og haustið 1997 kom út geisladiskurinn Dýrð-Vald-virðing, í samvinnu við Skálholtsútgáfuna.


 

Kammerkórinn Hymnodia hefur einbeitt sér að flutningi barokktónlistar. Stjórnandinn, Eyþór Ingi Jónsson, er sérmenntaður á því sviði en kórinn er skipaður vönu söngfólki frá Akureyri. Kórinn hefur m.a. flutt Messe de Minuit eftir Charpentier og svo fleiri minni kantötur og kórverk eftir þýsk og ensk barokktónskáld. Á föstunni árið 2006 flutti kórinn eitt stærsta kórverk 17. aldar, hið stórkostlega verk Membra Jesu Nostri eftir þýska tónskáldið Dietrich Buxtehude, verk fyrir kór, fimm einsöngvara og litla hljómsveit. Fengið var sænskt atvinnutónlistarfólk til liðs við kórinn vegna þessa verkefnis, meðal annars hin frábæra barokksöngkona, Anna Zander. Verkið var flutt í Akureyrarkirkju og Hallgrímskirkju og fékk flutningurinn mjög góða dóma gagnrýnenda og áheyrenda.
Auk barokktónlistarinnar hefur Hymnodia lagt áherslu á nýja kórtónlist án undirleiks. Kórinn hefur tvívegis komið fram á Myrkum músíkdögum þar sem einkum hefur verið flutt tónlist eftir íslenska höfunda. Þá hefur kórinn einnig komið fram á Hólahátíð, Sumartónleikum í Akureyrarkirkju, hádegistónleikaröð Tónlistarfélags Akureyrar í Ketilhúsinu, á miðaldadögum að Gásum og víðar.  Hymnodia söng undirraddir á plötu Óskars Péturssonar með lögum Gunnars Þórðarsonar. Kórinn tók vorið 2008 upp 17 verk eftir íslenskar konur og gaf út á plötunni Heyr mig mín sál. Í september 2009 fer Hymnodia til Sviss með kvennalögin og syngur þar á nokkrum tónleikum. Stefnt er að því að frumflytja nýtt tónverk eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur í ferðinni. Hymnodia er meðal stofnenda Barokksmiðju Hólastiftis sem heldur sína fyrstu barokkhátíð á Hólum í lok júní 2009. Nánar má fræðast um Hymnodiu á vefsíðu kórsins,
 
http://www.hymnodia.net/.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning