Frumkvöðull að stofnun þess var frú Ásdís Rafnar. Tilgangur félagsins var við stofnun þess að safna fé til Akureyrarkirkju og að vinna að því að ný kirkja kæmist upp hið allra fyrsta. Á fyrstu starfsárunum voru fundirnir haldnir á ýmsum stöðum, þar til árið 1941 að fyrsti fundurinn var haldinn í kirkjukapellunni, sem var svo fundarstaður félagsins þar til Safnaðarheimilið var vígt árið 1990.
Eftir að Akureyrarkirkja reis af grunni einbeittu félagskonur sér að því að styðja við framkvæmdir, efla og viðhalda búnaði kirkjunnar, glæða safnaðarstarfið og liðsinna ýmsum menningar- og mannúðarmálum í anda kirkjunnar. Verkefnin við búnað kirkjunnar hafa alltaf verið valin í samráði við prestana og/eða sóknarnefnd.
Auk búnaðar í kirkju vann kvenfélagið að innréttingu eldhúss o.fl í kapellunni og síðar í Safnaðarheimili. Alla tíð hefur félagið séð um fermingarkyrtlana og aðstoðað við að klæða fermingarbörnin. Eftir að aðstaða skapaðist í kapellunni sáu félagskonur um messukaffi fyrsta sunnudag hvers mánaðar yfir vetrartímann. Sú starfsemi fluttist svo að sjálfsögðu í Safnaðarheimilið eftir að það komst í gagnið. Auk messukaffisins hefur félagið séð um veitingar við ýmsar samkomur og gestakomur á vegum kirkjunnar.
Starfsemi félagsins hefur verið furðu fjölbreytt og að sjálfsögðu markast af þörfum hvers tíma. Til dæmis var skipulögð fótsnyrting fyrir aldraða í samvinnu við Elliheimilið um árabil. Barnagæsla var í boði fyrir börn á aldrinum 1-5 ára á messutíma og mætti fleira nefna. Um langt árabil hefur félagið árlega styrkt bæði Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstarf kirkjunnar og leitast þannig við að láta gott af sér leiða.
Árlegur fjáröflunardagur félagsins er síðari hluta nóvembermánaðar á sunnudegi, sem næstur er vígsludegi kirkjunnar. Aðsókn hefur jafnan verið mjög góð og allar félagskonur lagt sitt af mörkum.
Fundir veturinn 2009-2010:
14. október kl. 19:30.
27. nóvember kl. 18:00, jólafundur.
10. febrúar kl. 19:30.
5. maí kl. 19:30, aðalfundur.
Stjórn kvenfélagsins er þannig skipuð:
Kristjana Baldursdóttir, formaður
Hulda Kristjánsdótttir, vara formaður
Margrét Alfreðsdóttir, gjaldkeri
Erla Ásmundsdóttir, ritari






