Um árabil hefur eldri borgurum verið boðið til samveru í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Þessar samverur, opið hús, eru fyrsta
fimmtudag hvers mánaðar yfir vetrartímann og njóta mikilla vinsælda. Dagskráin er alltaf mjög fjölbreytt. Ræðumenn hafa frætt
fólk um hin ýmsu mál og spjallað á léttu nótunum, tónlist er flutt, myndir sýndar og almennur söngur er á meðal fastra
liða. Kaffiveitingar á vægu verði eru í boði.
Boðið er upp á akstur til og frá Akureyrarkirkju í tengslum við opið hús og fer bíll frá Kjarnalundi kl. 14:15, frá Víðilundi kl. 14:30 og frá Hlíð kl. 14:45.
Boðið er upp á akstur til og frá Akureyrarkirkju í tengslum við opið hús og fer bíll frá Kjarnalundi kl. 14:15, frá Víðilundi kl. 14:30 og frá Hlíð kl. 14:45.






