Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Samhygð - samtök um sorg og sorgarviðbrögð

Samhygð, samtök um sorg og sorgarviðbrögð á Akureyri og nágrenni voru stofnuð í desember 1989 af hópi fólks sem hafði kynnst sambærilegum félagsskap í Reykjavík og fann að það var mikil þörf fyrir svona sjálfshjálparhópa á landsbyggðinni.  Frá upphafi voru fundir haldnir hálfsmánaðarlega allt árið í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.  Á veturna var reynt að vera með fyrirlestur í hverjum mánuði um hin ýmsu efni.  Nú starfar félagið einu sinni í mánuði frá september til maí og er áætlað að vera með fyrirlestra/erindi í hvert skipti.  Markmið samtakanna er að veita þeim stuðning sem koma að leita sér hjálpar eftir ýmis sorgaráföll er upp koma í lífinu, hvort heldur það er ástvinamissir, alvarleg veikindi, fötlun, atvinnumissir, skilnaður, gjaldþrot eða hvað annað.  Það hjálpar heilmikið að geta talað við einhvern í trúnaði um sorgir sínar og áhyggjur og vita að sá hinn sami hefur upplifað sömu tilfinningar og efasemdir um framtíðina, en getur nú litið glaður fram á veginn. 
Fundir Samhygðar eru í fundarsal Safnaðarheimilis Akureyrarkirkju, gengið inn hjá kapellunni. 
Opið hús/fundirnir byrja kl. 20.00 og eru auglýstir í Dagskránni daginn áður.

Stjórn Samhygðar veturinn 2011 - 2012 eru:

Kristín Sveinbjörnsdóttir, formaður,
sími 462-6965 og 847-4250, netfang kittyes@simnet.is 
Hugrún Stefánsdóttir, gjaldkeri.
Annetta Maria Norbertsdóttir.
Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir.

Varastjórn:
Ólöf Tryggvadóttir.

Veffang Samhygðar: www.kirkjan.is/eyjafjardarprofastsdaemi

Opið hús/fundir vetrarins 2011 - 2012

8. september Opið hús, spjall og kaffi.

13. október Karl Reynir Einarsson, geðlæknir verður með erindið
„Steita samfara áföllum og sorg“.

10. nóvember sr. Svavar Alfreð Jónsson, með erindið "Makamissir".

8. desember sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum með erindið "Hátíð fer að höndum ein".

12. janúar Kristín S. Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur með erindi.

9. febrúar Bryndís Símonardóttir, fjölskylduráðgjafi með erindið "Að meðhöndla sorg sem hefur búið lengi með einstaklingnum".

8. mars sr. Sigurður Pálsson, með erindið "Börn og sorg“.

12. apríl Guðbjörg Sveinsdóttir, fræðslumiðill með erindið "Eilíft líf".

10. maí Opið hús, spjall og kaffi.

Allir velkomnir á fundi.

Birt með fyrirvara um breytingar. Nánar auglýst í Dagskránni.

Engin félagsgjöld en öllum velkomið að styrkja félagið með fjárframlögum á reikning 0162-26-003607, kt. 640191-2289.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning