Kór Akureyrarkirkju
Í kórnum eru 80 söngvarar á öllum aldri. Kórinn syngur allur fyrsta sunnudag í hverjum mánuði auk þess að syngja á stórhátíðum. Kórnum er skipt í 4 messuhópa, hver hópur syngur 2-3 sinnum á önn.
Kórinn heldur sjálfstæða tónleika 3-5 sinnum á ári og syngur allt frá aðgengilegum dægurlögum upp í stórvirki kórbókmenntanna.
Æfingar kórsins eru á þriðjudögum kl. 20-22.
Stjórnendur eru Eyþór Ingi Jónsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Stúlknakór Akureyrarkirkju
Í kórnum er 40 stúlkur á aldrinum 13-16 ára. Kórinn tekur virkan þátt í fjölbreyttu helgihaldi. Kórinn syngur reglulega á tónleikum með landsþekktum listamönnum sem og á sjálfstæðum tónleikum.
Lögð er mikil áhersla á félagslega þátt starfsins, mikið um námskeið, óvæntar uppákomur o.fl.
Kórinn fer á 2-3 ára fresti í tónleikaferð til Evrópu.
Kórinn æfir á fimmtudögum kl. 17-19.
Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson.

Barnakórar Akureyrarkirkju
Barnakórarnir eru tveir, yngri kórinn er fyrir börn úr 2.-4. bekk grunnskóla og sá eldri er fyrir börn úr 5.-7. bekk.
Áhersla er lögð á rétta raddbeitingu og skemmtilegt andrúmsloft. Kórarnir syngja við fjölskylduguðsþjónustur ásamt
því að syngja við ýmsar uppákomur víða í bænum.
Stjórnandi barnakóranna er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.

Hymnodia
Hymnodia er tónleikakór, skipaður 16 vönum söngvurum. Markmið kórsins er að efla íslenska kórtónlist með því að halda reglulega tónleika með verkum íslenskra tónskálda. Einnig einbeitir kórinn sér að verkum frá barokktímanum.
Ekki er laust pláss í Hymnodiu í vetur.

Upplýsingar og umsóknir skal senda á netfangið eythor@akirkja.is eða sigrun@akirkja.is
(barnakórar)