Akureyrarkirkja

Vefur Akureyrarkirkju

Trúarleg þjónusta á FSA

Á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri er gefinn kostur á trúarlegri þjónustu.

Sjúkrahúsprestur er sr. Guðrún Eggertsdóttir og djákni Valgerður Valgarðsdóttir.

Sjúkrahúsprestur og djákni sinna andlegri og trúarlegri þjónustu við sjúklinga, aðstandendur og starfsmenn FSA.  Starfið felst í sálgæslu, bænastundum, helgihaldi, stuðningsviðtölum og fræðslu.
Prestur og djákni hafa samstarf við presta Akureyrarkirkju svo og aðra presta og forstöðumenn safnaða og geta haft milligöngu sé þess óskað.

Ef þú vilt ná sambandi við sjúkrahúsprest eða djákna, hafðu þá vinsamlega samband við starfsmann á deildinni þinni, sem getur náð sambandi fyrir þig eða hringdu í skiptiborð FSA: 463-0100.

Farsími prests: 860-0545, netfang : gudrune@fsa.is
Farsími djákna: 860-0543, netfang: valgerdurv@fsa.is

Skrifstofa trúarlegrar þjónustu er á fyrstu hæð, inn af kapellu.  Kapellan er alltaf opin öllum sem þangað vilja leita kyrrðar, til bænar og íhugunar.  Fyrirbænarefni má skrá í fyrirbænabók sem liggur á altarinu, eða koma beint til prests eða djákna.

Helgihald á FSA ( sept - maí )

FSA :
Fyrirbænastund er miðvikudaga í kapellu kl. 11.15. 

Kristnes :
Fyrirbænastund er þriðjudaga kl. 13.00 í skrifstofu.
Helgisamvera er þriðjudaga kl. 14.30 á Ö. deild.

Sel- hjúkrunardeild :
Helgisamvera er fimmtudaga kl. 15.00.

Dagdeild Skólastíg :
Helgisamvera er einu sinni í mánuði. Auglýst sérstaklega þar.

Guðsþjónustur og minningarstundir eru auglýstar sérstaklega.

Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
( H. P )

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning