Almennt - fimmtudagur 02. september 2010 - 11:14
Þá er búið að ákveða hvaða fermingardagar verða í boði vorið 2011 og eru þeir sem hér segir:
Laugardagurinn 16. apríl, Pálmasunnudagur 17. apríl, laugardagurinn 7. maí, laugardagurinn 4. júní, laugardagurinn 11. júní og
Hvítasunnudagur 12. júní. Fermt verður kl. 10.30.
Foreldrar/forráðamenn fermingarbarna fá sent bréf á næstu dögum með nánari upplýsingum um fermingarundirbúninginn og
skráningarblaði þar sem hægt verður að velja fermingardaginn. Skráningarblaðinu er svo skilað inn á fundi sem haldinn verður sunnudaginn 19.
september.
Almennt - föstudagur 27. ágúst 2010 - 12:41
Nú fer barnakórastarfið í Akureyrarkirkju að hefjast og verða æfingarnar í kapellu kirkjunnar eins og verið hefur. Fyrsta æfing
kóranna verður fimmtudaginn 9. september, yngri kórinn (2.-4. bekkur)
kl. 15.00-16.00 og eldri kórinn (5.-7. bekkur)
kl. 16.00-17.00.
Hægt að fá upplýsingar og senda skráningu á netfangið sigrun@akirkja.is einnig er hægt að
smella á yngri kór eða
eldri kór og prenta út skráningarblað sem skila má inn á skrifstofu kirkjunnar alla virka
daga milli kl. 9.00 og 12.00.
Kór Akureyrarkirkju og Kammerkórinn Ísold hefja æfingar þriðjudaginn 14. september nk. Æfing Kammerkórsins Ísoldar kl.
16.30-18.00 og æfing Kórs Akureyrarkirkju kl. 20.00-22.00.
Dagana 7. - 9. september milli kl. 16.00 og 20.00 standa yfir inntökupróf í kórana. Umsóknir sendist á netfangið organistar@akirkja.is
Almennt - miðvikudagur 01. september 2010 - 09:15
Helgistund í Akureyrarkirkju kl. 20.00.
Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir.
Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Almennt - mánudagur 30. ágúst 2010 - 09:49
Síðustu hádegistónleikarnir þetta sumarið verða haldnir á morgun, þriðjudaginn 31. ágúst kl. 12.15, þar munu þau
Hildur Tryggvadóttir, sópran, og Eyþór Ingi Jónsson, organisti, koma fram.
Á efnisskránni verða bæði þekkt og minna þekkt íslensk sönglög.
Tónleikarnir standa yfir í hálfa klukkustund og er aðgangseyrir kr. 1000,-
(því miður er ekki hægt að greiða með korti).